Fyrirvarar og Áhættuþættir

Þetta er ekki fjárfestingaráðgjöf. Allar fjárfestingar fela í sér áhættu á tapi. Lestu vandlega eftirfarandi upplýsingar áður en þú tekur ákvörðun um fjárfestingu.

Almenn áhætta og hagsmunaárekstrar

Áhættan við að fjárfesta í sprotafyrirtækjum er mjög mikil og óvissa um ávöxtun eða endurheimt fjármagns er veruleg. Það er engin trygging fyrir því að fjárfestingarmarkmið náist, að sprotafyrirtæki standi við áætlanir sínar eða að stjórnendur og stofnendur þeirra hafi þá reynslu sem þarf til að hámarka líkur á árangri. Fjárfestir getur oft tapað öllu sínu fé.

Auk þess geta myndast aðstæður sem leiða til hagsmunaárekstra, til dæmis ef kaupfjelagsstjóri eða tengdir aðilar hafa möguleika á að forðast tap eða hagnast þegar aðrir tapa.

Rekstrarlegar og markaðslegar áskoranir

Sprotafyrirtæki búa við sífelldar áskoranir, hvort sem er í vöru- eða tækniþróun, markaðssetningu, fjármögnun eða almennri stjórnun. Slík fyrirtæki geta fljótt orðið úrelt vegna hraðra tækni- og markaðsbreytinga, þau þurfa yfirleitt viðbótarfjármagn sem kann að vera erfitt að afla, og hlutur þinn getur þynnst við nýtt hlutafjárútboð.

Að sama skapi er oft erfitt að meta raunvirði fyrirtækja sem ekki eru skráð á markað, og þú gætir ekki alltaf haft greiðan aðgang að upplýsingum um reksturinn. Þá er líka erfitt að selja hlut sinn, þar sem yfirleitt er enginn virkur markaður fyrir óskráð verðbréf.

Ytri þættir og fyrri árangur

Almennar efnahagsaðstæður, breytingar á reglum eða lögum, ásamt skattalegum þáttum, geta haft veruleg og ófyrirséð áhrif. Fyrirtækið sem þú fjárfestir í í gegnum kaupfjelag kann að vera nýtt og án rekstrarsögu, og fyrri árangur stjórnenda eða annarra tengdra aðila veitir enga fullvissu um árangur í framtíðinni.

Framtíðarhorfur eru ávallt háðar breytingum á markaðs- og samkeppnisaðstæðum, tækniframförum og ófyrirsjáanlegum utanaðkomandi þáttum.

Ábyrgð fjárfestis og fyrirvarar

Hér er ekki um tæmandi upptalningu áhættuþátta að ræða.

Öllum fjárfestum er eindregið ráðlagt að leita faglegrar lögfræði- og skattaráðgjafar, lesa vel í öll gögn og gera sjálfstætt mat á áhættu áður en þeir fjárfesta.

Hvorki Fjelagið, né kaupfjelagsstjórar eru fjármálaráðgjafar, fjármálafyrirtæki, eða sjóðsstjórar, og eru allar ákvarðanir á ábyrgð notenda vefvangsins.