Spurt og svarað

Almennt

Hvernig virkar þetta?

Það getur verið gaman, arðbært (og á sama tíma mjög áhættusamt og líklega ekki arðbært...) að fjárfesta í sprotafyrirtæki. En það getur verið flókið. Það þarf að finna tækifærin, greina þau, kynnast stofnendum, og fá vilyrði þeirra fyrir fjárfestingunni. Á sama tíma er flókið og vandasamt verk að halda utan um hluthafana sína, og fæstir stofnendur vilja hafa marga örlitla aðila, sem fjárfesta hundruðum þúsunda eða nokkrum milljónum, sem staka hluthafa. Til að bregðast við því vandamáli hafa erlendis orðið til vefvangar á borð við Angel List sem gera aðilum það kleift að búa á einfaldan hátt til sérgangsfélag (e. Special Purpose Vehicle) í kringum stakar fjárfestingar. Þannig geta minni aðilar hópað sig saman og fjárfest í spennandi tækifæru, og stofnendur fyrirtækjanna fá hóp áhugasamra fjárfesta á bak við sig, án þess þó að þurfa að stækka hlutaskrána sína um of. Fjelagið gerir þennan feril einfaldan.

Hvað er Fjelagið?

Fjelagið er íslenskur vefvangur fyrir samstarf um sprotafjárfestingar byggt á alþjóðri fyrirmynd um sambærilega vefvanga.

Hvaða þjónustu býður Fjelagið upp á?

Fjelagið býður upp á stafræna lausn fyrir stofnun og umsýslu sérgangsfélaga (e. Special Purpose Vehicle, félög með sérstakan tilgang). Þjónusta Fjelagsins gerir umsjón með og þátttöku í sérgangsfélagi um fjárfestingu auðveldari fyrir alla aðila. Þannig geta kaupfjelagsstjórar (e. Syndicate Lead - þeir sem leiða fjárfestingu í sprota) einbeitt sér að samskiptum við sprota og aðra, en ekki pappírsvinnu.

Hvað kostar að nota Fjelagið?

Það kostar ekkert að skrá sig, stofna kaupfjelög eða skoða tækifæri. Fjelagið innheimtir 900.000 kr. í þjónustugjald sem felur í sér kostnað við uppsetningu félags, innheimtu hlutafjár, tilkynningar- og stofngjöld til RSK, og umsjón næstu tíu ár eftir fjárfestingu (þ.e. greiðsla árlegra skatta, skil á gögnum, og svo framvegis).

Hvernig skrái ég mig á Fjelagið?

Enn sem komið er þarf boð frá kaupfjelagsstjóra eða starfsfólki Fjelagsins til að fá aðgang.

Fyrir fjárfesta

Hvernig tek ég þátt í fjárfestingu?

Fáirðu boð frá kaupfélagsstjóra til að taka þátt í fjárfestingu getur þú skráð þig í gegnum kerfið og fyllt út viðeigandi upplýsingar.

Hvernig veit ég hvenær tækifæri eru í boði?

Kaupfélagsstjóri sendir þér boð þegar ný tækifæri eru í boði. Þú getur skoðað öll tækifæri sem þér standa til boða í "Tækifæri" flipanum.

Hvernig fylgist ég með fjárfestingum mínum?

Á "Tækifæri" flipanum getur þú skoðað allar fjárfestingar sem þú hefur tekið þátt í og séð stöðu þeirra.

Get ég selt hlut minn í sérgangsfélaginu (SPV)?

Söluferli hluta fer eftir samþykktum hvers félags. Í flestum tilfellum þarf samþykki annarra hluthafa og/eða stjórnar til að selja hlut. Hafðu samband við þinn kaupfjelagsstjóra með spurningar um einstaka tækifæri.

Fyrir kaupfélagsstjóra

Hvernig stofna ég nýtt félag?

Þú getur stofnað nýtt félag í gegnum "Fjelög" flipann með því að smella á "Stofna nýtt félag" og fylgja leiðbeiningunum.

Hvernig bý ég til nýtt tækifæri?

Á "Tækifæri" flipanum getur þú smellt á "Nýtt tækifæri" og slegið inn upplýsingar um fjárfestinguna, skilmála og aðrar upplýsingar sem fjárfestar þurfa.

Hvernig bjóða ég fjárfestum að taka þátt?

Þegar þú hefur stofnað tækifæri getur þú sent fjárfestum boð í gegnum kerfið með því að smella á "Bjóða fjárfestum" og slá inn netföng þeirra.

Hvernig fylgist ég með skráningu fjárfesta?

Þú getur séð stöðu allra fjárfesta í tækifærinu þínu undir "Tækifæri" og smellt á viðkomandi tækifæri til að sjá nákvæma stöðu hvers fjárfestis.